Þegar nýtt ferli er mótað eða gerðar eru endurbætur á eldra ferli er einungis hluti af vinnunni lokið. Það sem á eftir kemur reynist starfsmönnum og stjórnendum oft þrautinni þyngri.
Á Dokkufundinum fara þær Ásdís og Margrét í gegnum helstu áskoranir sem takast þarf á við þegar sjálft ferlið er tilbúið:
Fyrsta hindrunin er vinnan sem þarf leggja í þau umbótaverkefni sem koma úr ferlavinnunni, en oft á tíðum eiga starfsmenn og stjórnendur erfitt með að finna tíma til að vinna verkefnin og þau hafa tilhneigingu til að daga uppi.
Önnur hindrunin er innleiðingin sjálf sem snýr að því að breyta hegðun starfsmanna á þann hátt að farið sé eftir nýja ferlinu en ekki framhjá því eða eftir því gamla.
Þriðji og síðasti þátturinn snýr svo að því hvernig við tryggjum stöðugar umbætur á bæði nýjum og núverandi ferlum innan fyrirtækisins.
Hverjar verða með okkur? Ásdís Kristinsdóttir og Margrét Ragnarsdóttir hjá GEMBA
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…