Vitræn hæfniVæntanlegur

Að fá að ráða eigin lífslokum – fyrirlestur um dánaraðstoð

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi fáum við að heyra persónulega sögu.

Faðir Ingridar var með þeim fyrstu í Hollandi til að fá dánaraðstoð (á löglegan hátt) í apríl 2002, aðeins 11 dögum eftir að lögin um dánaraðstoð tóku gildi þar í landi.

Ingrid mun segja sögu föður síns og ræða þetta mikilvæga og viðkvæma málefni.

Hún er formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð, sem var stofnað 2017. Markmið félagsins er m.a. að stuðla að opinni, uppbyggilegri og víðtækri umræðu um dánaraðstoð og vinna að því að samþykkt verði löggjöf um það að við vissar, vel skilgreindar aðstæður, og að uppfylltum ströngum skilyrðum, verði dánaraðstoð mannúðlegur valkostur fyrir þá sem kjósa að deyja á eigin forsendum.

Hver verður með okkur?
Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi