Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Hvernig leiðtogi viltu vera?

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um árangursríkar leiðir til þess að efla leiðtogafærni og skoðað hvernig eiginleikar og hæfni stjórnenda geta skipt sköpum þegar kemur að starfsánægju, líðan og árangri.
Kynntar verða helstu grunngerðir leiðtogastíla með hliðsjón af tilfinningagreind, kostum þeirra og göllum ásamt ýmsum leiðum til þess að bregðast við þeim áskorunum sem óhjákvæmilega fylgja stjórnunarstörfum.
Á fundinum fá þátttakendur tækifæri til þess að máta sig við grunngerðir leiðtogastílanna og kynna sér hagnýtar aðferðir til að efla eigin færni sem stjórnendur.

Hver verður með okkur?
Steinunn Ragnarsdóttir. Hú hefur verið meðal leiðandi stjórnenda í menningarlífi landsins um árabil.
Árið 2018 lauk hún þriggja ára Fellowship námi í stjórnun og stefnumótun frá háskólanum í Maryland í boði DeVos Institute for Arts management og Executive leadership frá Harvard Business School ári síðar.
Steinunn hefur einnig lokið diplómanámi á meistarastigi í Jákvæðri sálfræði og starfar sjálfstætt sem stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi. 

Hún heldur reglulega námskeið og vinnustofur í fyrirtækjum og kemur fram á alþjóðlegum ráðstefnum þar sem hún heldur m.a. erindi um leiðtogahæfni og skapandi stjórnun. Sjá nánar; www.confirma.is

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi