Fundur um þekkingu, ákvarðanatöku og framkvæmd. Hvers vegna stranda góðar hugmyndir?
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um mótsögnina sem felst í að þrátt fyrir bestu þekkingu virðist erfitt að taka bestu ákvarðanir grundaðar á þeirri þekkingu.
Jafnframt verður skoðað hvers vegna fræðileg þekking og fagleg vitneskja skilar sér ekki alltaf í stefnumótun, daglegum vinnubrögðum og mælanlegum árangri.
Nálgunina má yfirfæra á hvað sem er í rekstri fyrirtækja, stofnana, við greiningu á kerfum og stofnunum.
Erindið byggir m.a. á íslenskri rannsókn frá 2024, OECD skýrslu (metadata) frá 2025 og breskri rannsókn frá 2022. Að auki eru fleiri rannsóknir sem varpa skýru ljósi á áskorunina.
Í lokin fá þátttakendur með sér 4 lykilspurningar sem hjálpa til við góða ákvarðanatöku.
Hver verður með okkur?
Björn M. Sigurjónsson. Hann er sjálfstætt starfandi greinandi með sérhæfingu í policy analysis.
Hann skrifar m.a. fyrir Monthly Policy Review og Finland Monthly Briefing sem er gefið út af Mundus International í Stokkhólmi.
Hann hefur sinnt kennslu á háskólastigi í Danmörku undanfarin 12 ár, komið að rannsóknum og stefnumótunarvinnu innan danska skólakerfisins.
Björn er með B.Sc. gráðu frá HÍ í hagrænni landafræði, MPhil frá Strathclyde University og ML í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.