Skýrslugjöf um kynbundinn launamun – hvar á að byrja?
Fyrirtæki og stofnanir með fleiri en 50 starfsmenn þurfa að uppfylla lagaskyldu um skýrslugjöf um kynbundinn launamun sem felur í sér skil á gögnum sem sýna fram á…
Skoða fund →
Heimurinn hreyfist hratt og bilið milli stjórnenda og starfsfólks þegar kemur að stefnu er raunveruleg áskorun.
Aðeins þriðjungur starfsfólks veit skýrt hvert fyrirtækið þeirra stefnir. Það er ekki skortur á stefnu. Það er skortur á þátttöku.
Nútímaleg stefnumótun þarf að vera hraðari, einfaldari og með fólkinu. Í grunninn snýst hún um tvennt: hvað ætlum við að gera og með hvaða aðföngum?
Í Stefnuhraðlinum er ekki byrjað á djúpum greiningum og löngum skýrslum. Fólkið sem á að framkvæma stefnuna tekur höndum saman, greinir stöðuna sjálft og sameinast um skýr meginmarkmið sem allir standa á bak við. Ávinningurinn er stefna sem verður til hratt, gagnsæ framvinda og starfsfólk sem er virkt í vegferðinni.
Árangur er vegferð, ekki áfangastaður.
Hver verður með okkur?
Sigvaldi Egill Lárusson hjá Hugsýn.
Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálastjórnun fyrirtækja og stofnana ásamt því að hafa á undanförnum árum starfað við ráðgjöf á sviði stefnumótunar, innleiðingar stefnu og breytingastjórnunar.