Sama rými, ólík upplifun
Þegar vinnuumhverfi er breytt beinist athyglin oft að fermetrum, húsgögnum og tæknilausnum. Vinnuumhverfi er hins vegar mun meira en húsnæði og skrifborð. Rannsóknir sýna að sveigjanlegt vinnuumhverfi getur…
Skoða fund →
Viðverusamtöl, fjarverusamtöl, umhyggjusamtöl.
– Mismunandi orð yfir sama samtalið sem ætlað er að grípa starfsmann og aðstoða.
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um upplifun starfsfólks í veikindum og hvernig stjórnendur geta átt uppbyggileg samtöl um fjarvistir.
Skoðað verður hvernig hægt er að undirbúa veikindasamtöl vel, skapa skýran tilgang og markmið og eiga samtal sem styður bæði einstaklinginn og þarfir vinnustaðarins.
Áhersla verður lögð á skýrleika, virðingu og að samtalið verði leið til stuðnings og lausna fremur en upplifun af eftirliti eða ásökun.
Hver verður með okkur?
Ólafur Kári Júlíusson er eigandi Vinnuvís og vinnusálfræðingur með um 16 ára reynslu af mannauðsmálum og ráðgjöf.
Hann vinnur með stjórnendum og starfsfólki að fjölbreyttum og oft krefjandi vinnustaðamálum og hefur mikla reynslu af fræðslu, námskeiðum og erindum um stjórnun, samskipti, mannauðsmál og vinnusálfræði.