Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Tæknin er aðeins verkfæri: Hvernig styðjum við fólk í sífelldum breytingum?

09:00
Á Teams

Við höfum aldrei haft jafn mörg verkfæri til að auðvelda okkur vinnuna.

Samt upplifa margir meira álag, meiri óvissu og minni fókus. Hvers vegna?

Þegar ný tækni, ferlar og vinnubrögð taka stöðugt við hvert af öðru reynir sífellt meira á aðlögunarhæfni fólks og vinnustaða. En aðlögunarhæfni verður ekki til af sjálfu sér. Þegar breytingar eru stöðugar dugar ekki að innleiða nýja tækni og ferla. Árangurinn ræðst líka af því hvort fólk fær skýrleika, stuðning og raunverulegt svigrúm til að læra, aðlagast og tileinka sér ný vinnubrögð.

Í erindinu verður sjónum beint að því hvernig stjórnendur geta skapað vinnuumhverfi sem ýtir undir lærdóm, seiglu og forvitni og hjálpar fólki að takast á við sífelldar breytingar án þess að missa fókus, orku og trú á verkefninu.

Hver verður með okkur?

Berglind Björk Hreinsdóttir, meðeigandi og stjórnendaráðgjafi hjá Kjarki ráðgjöf.
Hún er reyndur stjórnandi, markþjálfi og sérfræðingur í mannauðsstjórnun með um 20 ára reynslu af mannauðs- og stjórnunarstörfum á opinberum og almennum vinnumarkaði.

Berglind hefur leitt stefnumótun og innleiðingu ferla sem styðja við vinnustaðamenningu, starfsánægju og heilbrigt vinnuumhverfi.
Í ráðgjöf sinni vinnur hún með stjórnendum og vinnustöðum að því að skapa skýrleika, styrkja samstarf og styðja fólk og skipulagsheildir í gegnum breytingar.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi