Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Þarf maður að vera heilbrigður til að vinna?

09:00
Á Teams
  • Viðhorf okkar til starfsgetu þegar heilsan bregst

Þegar heilsan bregst er fyrsta spurningin oft hvort einstaklingur eigi að vera í starfi eða fara í veikindaleyfi. Það getur vissulega verið flókið að meta starfsgetu þegar fólk glímir við veikindi.
 
En er heilsubrestur alltaf það sama og óvinnufærni?
 
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um viðhorf okkar til heilsu, starfsgetu og veikindafjarveru.
Skoðað verður hvernig þátttaka í starfi getur, við réttar aðstæður, stutt heilsu og bata og hvaða hlutverki stjórnendur og vinnustaðir gegna við að styðja fólk til áframhaldandi þátttöku í atvinnulífinu.
 
Erindið er ætlað öllum sem vilja dýpka skilning sinn á samspili heilsu og starfsgetu og taka þátt í mikilvægu samtali um það hvernig við getum betur stutt við fólk á vinnumarkaði sem glímir við heilsufarsvanda.

Hver verður með okkur?
Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarna hjá Virk, starfsendurhæfingarsjóði.
Guðrún er nú í doktorsnámi en hún er þegar með meistaragráðu í taugasálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og B.Sc. í sálfræði frá Háskóla Íslands.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi