Vitræn hæfniVæntanlegur

Siðferðisgáttin – óæskileg framkoma eða vanlíðan á vinnustaðnum

09:00
Á Teams

Siðferðisgáttin er þjónusta sem ráðningar- og ráðgjafarfyrirtækið Hagvangur hefur boðið upp á í ríflega tvö ár.
Með þjónustunni gefst starfsmönnum fyrirtækja og stofnana kostur á að koma á framfæri beint til óháðs teymis innan Hagvangs ef þeir verða fyrir óæskilegri háttsemi á vinnustað eða finna fyrir annars konar vanlíðan í starfi. 

Á Dokkufundinum mun verða leitast við að veita svör við eftirfarandi spurningum:

  • Fyrirkomulag þjónustunnar?
  • Hver hefur reynslan verið hingað til?
  • Á Siðferðisgáttin heima á allar tegundir vinnustaða?
  • Hver er ávinningurinn?
  • Hvað hefur reynst áskorun?

Hver verða með okkur?
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi
Yrsa Guðrún þorvaldsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi
Gyða Kristjánsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi