Vitræn hæfniVæntanlegur

Ástarsvindl, einkenni, raunveruleg dæmi og forvarnir

09:00
Á Teams

Við grípum tækifærið í kjölfar vinsælda myndarinnar um Tinder Swindler og þáttanna um Önnu Delvey á Netflix, og ræðum um fjársvik og hætturnar á netinu.

Í ástarsvikum stofna svikarar til falsks ástarsambands á netinu í þeim tilgangi að hafa fé af fórnarlömbunum. Þeir þykjast t.d. vera ungar konur í vanda eða særðir hermenn til að fá fólk til að bíta á agnið.
Það er ekki tilviljun að svikararnir leita fórnarlamba á samfélagsmiðlum, stefnumótasíðum og -öppum. Ástæður þess að fórnarlömb falla í gildruna geta verið ótal margar, til að mynda tilfinningalegt uppnám og sorg eftir sambandsslit eða fráfall maka. Lýsingar svikaranna geta verið afskaplega sannfærandi, þar sem innri og ytri aðstæðum eru gerð ítarleg skil í nákvæmum frásögnum.

Á Dokkufundinum verður farið yfir helstu hættur þegar kemur að fjársvikum á netinu og hvers konar aðferðum og tækni svikarar beita til að ná til fólks og hverju þarf að vera vakandi yfir.
Raunveruleg dæmi verða fléttuð inn í umræðuna og hvað bankinn getur gert til að aðstoða fólk sem hefur orðið fyrir barðinu á svikahrappi.

Hver verður með okkur?
Brynja M. Ólafsdóttir, regluvörður hjá Landsbankanum

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi