Vitræn hæfniVæntanlegur

Persónuvernd: Áskoranir Reykjavíkurborgar varðandi meðferð persónuupplýsinga

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi er markmiðið að veita innsýn inn í persónuverndarréttinn þar sem farið verður yfir grunnhugtök persónuverndarlaganna (og GDPR), tilgang laganna, meginreglur og lögmæti vinnslu persónuupplýsinga.

Farið verður yfir efni sem er hagnýtt í fyrirtækjarekstri með það að markmiði að áheyrandi geti greint álitaefni sem tengjast persónuvernd á sínum vinnustað. Einnig verður farið yfir nýlegar úrlausnir Persónuverndar.

Kynningin er hugsuð fyrir starfsmenn sem vilja kynna sér reglur persónuverndarréttarins með það að markmiði að skilja mikilvægi persónuverndar og geta í framhaldinu greint álitaefni sem tengjast persónuvernd á sínum vinnustað.

Hver verður með okkur?
Aldís Geirdal Sverrisdóttir, teymisstjóri lögfræðiþjónustu á þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi