Stafræn og tæknileg hæfniVæntanlegur

Power BI og gagnadrifinn menning og stafræn hæfni

09:00
Á Teams

Gagnasöfnun fyrirtækja í dag hefur aldrei verið meiri og fer sífellt stækkandi. Á sama tíma hefur tæknin tekið stakkaskiptum til að auðvelda okkur að taka betri ákvarðanir byggðar á þessum gögnum. Með þessum tækninýjungum hefur auðvelt aðgengi að gögnum og gagnalæsi orðið lykillinn að samkeppnisforskoti fyrirtækja.

Á Dokkufundinum verður farið yfir hvað er gagnagreind og hvaða straumar og stefnur eru í þessum málaflokki. Eins verður skoðað hvað er stafræn hæfni og að vera gagnlæs og hvað er gagnadrifinn menning skipulagsheilda.

Hverjir verða með okkur?
Gauti Marteinsson, deildarstjóri viðskiptalausna hjá Advania og
Jón Ólafur Guðmundsson, ráðgjafi viðskiptalausna hjá Advania

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi