Vitræn hæfniVæntanlegur

“Stóra uppsögnin“ frá sjónarhóli giggara og ráðningarþjónustu.

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi ætlum við að velta fyrir okkur mögulegri breytingu á vinnumarkaðnum sem kölluð hefur verið “Stóra uppsögnin”. Kannanir sem gerðar voru fyrir ca. 1-2 árum gáfu til kynna að allt að 40% af vinnandi fólki var að huga um að segja upp í vinnunni. Okkur lék forvitni á að vita hvort uppsagnirnar sem virtust hafa verið í kortunum hafi orðið að raunveruleika og kannski líka hverjar voru ástæðurnar fyrir því að fólk var að hugsa um að hætta í vinnunni.

Hver verða með okkur?
– Harpa Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Hoobla – Hoobla aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að fá sérfræðinga í tímabundin verkefni og störf í lágu starfshlutfalli.
– Geirlaug Jóhannsdóttir, ráðgjafi, meðeigandi og stjórnendamarkþjálfi hjá Hagvangi – Hagvangur er eitt elsta ráðninga og ráðgjafafyrirtæki á Íslandi, stofnað 1971, og sérhæfir sig í ráðningum, einkum stjórnenda og sérfræðinga og mannauðsráðgjöf.

Meðal þess sem Harpa ræðir um:

  • “Stóra uppsögnin” og þær hröðu breytingar sem eru að verða á vinnumarkaði út frá “gigg-hagkerfinu” á alheimsvísu og hér heima.
  • Útskýrir hugtakið “gigg” og hvað það þýðir að vera “verkefnadrifinn” vinnustaður.
  • Eru fyrirtæki hér heima í auknum mæli farnir að nýta sér þjónustu giggara, eða er þetta bara eitthvað sem fólk talar um?
  • Að lokum lýsir Harpa sinni sýn á ráðningarferli framtíðarinnar, hvað telur hún að verði nauðsynlegt og hverju getur maður sleppt?

Meðal þess sem Geirlaug ræðir um:

  • Er „stóra uppsögnin“ að raungerast á Íslandi?
  • Eftir hverju er fólk að sækjast þegar það vill skipta um starf?
  • Ráðningar á þenslutímum – hverju þurfa vinnustaðir að huga að til að halda í gott starfsfólk og laða til sín öflugt starfsfólk.


Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi