Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Tungumál virkrar hlustunar

09:00
Á Teams

Á Dokkufundinum fáum við innsýn í “tungumál virkrar hlustunar”.

Margir vita hvað á EKKI að gera í virkri hlustun t.d. að gefa ráð, tala um sjálfan sig, skipta um umræðuefni – en  kannski vita færri hvernig virk hlustun “talar”, það er hvernig við staðfestum það sem sagt er með viðeigandi áherslum, hvernig má spegla viðmælanda á þann hátt sem hvetur og veitir endurgjöf, án þess að gera fólk ofurmeðvitað og hægja þannig á tjáningunni – eða setja fólk út laginu.

Við fáum dæmi um þetta í léttum dúr á leikrænum nótum og fáum að sjá hvernig hægt er að dýpka tjáningu viðmælanda með virkri hlustun.

Hver verður með okkur?
Arnór Már, markþjálfi  – MCC.
Arnór Már er einn af okkar reyndustu markþjálfum hér landi.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi