Er gervigreindin að taka yfir heiminn? (Ekki óttast, þetta er bara fyrirlestur)
09:00
Á Teams
Er framtíðin komin með hjálp gervigreindar? Markmiðið með fundinum er að veita þeim sem hann sitja innblástur og hugmyndir hvernig hægt er að nýta aðgengileg gerivgreindartól. Við skoðum hvernig gervigreindun hjálpaði til við að framleiðslu á markaðsherferð og skyggnumst til framtíðar.
Hvernig virkar gervigreind og hvað er undir húddinu? Á hverju byggir Chat-GPT, DALL-E og önnur open AI tól.
Við stiklum á stóru yfir nýlega markaðsherferð Advania sem framleidd var með hjálp gervigreindar, hvernig framleiðsluferlinu var háttað og hver lærdómskúrvan var. Eru tólin sem notuð voru fyrir tæpum 2 mánuðum orðin úreld? Og hvað nú?
Hvernig talar maður við gervigreind og skilur hún mann alltaf? Algeng mistök og lærdómur. Hvaða möguleikar opnast þegar Chat-GPT4 er farin að skilja íslensku?
Hlutirnir gerast hratt og við sjáum nýjungar skjóta upp kollinum nánast daglega. Er of seint að byrja núna, er ég búin að missa af lestinni?
Hver verða með okkur?
Auður Inga Einarsdóttir, markaðsstjóri Advania
Viðar Pétur Styrkársson, vörustjóri spjallmenna hjá Advania og meistarnemi í Gervigreind
Tryggvi Elínarson, tækniþróunarstjóri Datera
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hvernig þú getur byrjað að vinna hraðar, skýrara og skapandi með gervigreind — strax.
Á þessum Dokkufundi fáum við að sjá á einfaldan og hagnýtan hátt hvernig hægt er að nýta gervigreind til að spara tíma, vinna betur og einfalda dagleg verkefni….
Starfsfólkið þitt notar gervigreind nú þegar, hvort sem vinnustaðurinn veit af því eða ekki. Fyrirtækin sjálf eru hins vegar allt of lengi að bregðast við. Á flestum vinnustöðum…
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um stafræna vegferð, lærdóm og fræðilegar tengingar, uppbyggingu teyma, stafrænar umbreytingar, stafræna verkefna- og vörustýringu og kúltúrhakk – og leitast við að svara…