Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Hvað ef vinnan væri góð fyrir geðheilsuna?

09:00
Á Teams

Markmið Dokkufundarins er að vekja stjórnendur og starfsfólk til umhugsunar um mikilvægi þess að huga að geðheilbrigði á vinnustað. Farið verður yfir helstu áskoranir sem stjórnendur fyrirtækja og stofnana standa frammi fyrir þegar kemur að geðheilbrigði á vinnustað. Rætt verður um áhrif stjórnunar og vinnumenningar á geðheilsu starfsfólks, um skyldur og ábyrgð stjórnenda og þá þætti sem eru líklegir til að draga úr eða efla geðheilsu á vinnustað. Stuðst er við íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir og fjallað verður um þær leiðir til Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) og alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki hafa lagt til grundvallar í þessum málum.

Hver verður með okkur?
Helena Jónsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Mental.
Hún er klínískur sálfræðingur og hefur starfað sem slíkur um árabil.
Nánari upplýsingar um Helenu má finna á www.mentalradgjof.is

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi