Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur
Örugg tjáning með áherslu á netheima – rafræna fyrirlestra og framkomu
12:00
Á Teams
Á Dokkufundinum skoðum við og lærum betri samskipti og framkomu i netheimum:
Hefurðu áhuga á að læra hvernig hægt er að taka virkari þátt í umræðum á netfundum?
Finnst þér þú tala of hratt þegar spennan tekur völdin?
Hvernig er best að tjá sig á fjarfundum og hvernig er það frábrugðið venjulegum fundum?
Hvernig getum við stuðlað að góðum samskptum í netheimum, en þar er sannarlega hægt að misstíga sig
Hver verður með okkur? Sirrý Arnardóttir. Hún er stjórnendaþjálfari, fyrirlesari, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst. Fjölmiðlakona í 30 ár.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Bófarnir þrír – þegar kvíði, sorg og reiði mæta í vinnuna.
Það er ákveðinn órói í íslensku samfélagi. Breytingar, hagræðing, uppsagnir og efnahagsleg óvissa setja mark sitt á vinnustaði – og tilfinningarnar fylgja með. Á þessum Dokkufundi skoðum við…
Traust verður sýnilegt í daglegum samskiptum, sérstaklega þegar upp koma mistök, óvissa, ólík sjónarmið eða slæmar fréttir. Þar sem traust ríkir þorir fólk að biðja um hjálp, viðurkenna…
Leyndarmálið og lyklarnir að frammistöðu árangri og ánægju!
Á þessum fundi fáum við að sjá uppfært efni frá Bjarti. Á þessum Dokkufundi fer Bjartur í gegnum fyrirlestur til uppbyggingar fyrir þig og vinnustaðirnn þinn. Við vitum að…