Vitræn hæfniVæntanlegur

Spjall um þyngdarstjórnunarkerfi líkamans og sjúkdóminn offitu

09:00
Á Teams

Á Dokkufundinum fárum við að vita eitt og annað um efnaskiptaheilsu.
Það er fullkomlega eðlilegt að líkaminn okkar vilji safna forða. En ef of mikið er af orkuforða i fituvefnum þá vakna spurningarnar um hvort verið sé að ógna heilsunni okkar. Við fáum sífellt upplýsingar um ný snilldarráð til að léttast. Þau virka frábærlega í smá stund svo fer allt í sama farið aftur, jafnvel aðeins verra.
Með því að skilja þyngdarstjórnunarkerfi líkamans og fituvefinn sjálfan betur verður vonandi auðveldara að átta sig á því hvað er líklegt til að virka og hvað ekki. Þá verður líka auðveldara að átta sig á hvenær of mikil þyngd getur truflað heilsuna okkar og hvenær öllu er óhætt.

Hver verður með okkur?
Erla Gerður  Sveinsdóttir, heimilislæknir, lýðheilsufræðingur, sérfræðingur á sviði offitumeðferðar og yfirlæknir innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi