Á Dokkufundinum verður eftirfarandi spurningum svarað á skýran og auðskiljanlegan hátt – fyrir fólk sem hefur ekki endilega svo sterkan tæknilegan bakgrunn:
Hvað er gervigreind og hvernig getur hún nýst í daglegum störfum? Inngangur og nokkur dæmi um hvernig við hjá Öldu nýtum gervigreind.
Hvað ber helst að hafa í huga við notkun og innleiðingu gervigreindar á vinnustöðum? Öryggismál, skjölun og hlutdrægni gervigreindar.
Hver verður með okkur? Sigyn Jónsdóttir, CTO (tæknistjóri) og meðstofnandi Öldu. Hún starfaði áður sem VP Customer Care hjá Men&Mice, var varaformaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs 2019-2023 og var formaður Ungra athafnakvenna árin 2017-2019. Sigyn er með B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. Management Science & Engineering frá Columbia-háskóla í New York.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hvernig þú getur byrjað að vinna hraðar, skýrara og skapandi með gervigreind — strax.
Á þessum Dokkufundi fáum við að sjá á einfaldan og hagnýtan hátt hvernig hægt er að nýta gervigreind til að spara tíma, vinna betur og einfalda dagleg verkefni….
Starfsfólkið þitt notar gervigreind nú þegar, hvort sem vinnustaðurinn veit af því eða ekki. Fyrirtækin sjálf eru hins vegar allt of lengi að bregðast við. Á flestum vinnustöðum…
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um stafræna vegferð, lærdóm og fræðilegar tengingar, uppbyggingu teyma, stafrænar umbreytingar, stafræna verkefna- og vörustýringu og kúltúrhakk – og leitast við að svara…