Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Hvernig getum við aukið vellíðan á vinnustað og hvaða þættir í vinnuumhverfinu hafa mest áhrif á líðanina

09:00
Á Teams

Stjórnendur eru í meira mæli farnir að gera sér grein fyrir því að andleg og líkamleg vellíðan á vinnustað skiptir máli og hefur áhrif á frammistöðu starfsfólksins og árangur skipulagsheilda. Í þessu erindi verða skoðaðir hvaða þættir það eru í vinnuumhverfinu sem hafa mest áhrif á vinnutengda líðan starfsfólksins, bæði andlega og líkamlega vellíðan og hvað stjórnendur geta gert til að stuðla að betra vinnuumhverfi og þar með meiri vellíðan í vinnu.

Hver verður með okkur?
Hjördís Sigursteinsdóttir, Dósent við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið-Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi