Leiðtogahlutverkið á tímum breytinga
Þegar óvissan eykst verður leiðtogahlutverkið sýnilegra en nokkru sinni. Breytingar reyna ekki aðeins á skipulag, ferla og ákvarðanir. Þær reyna á fólk. Þegar svörin eru ekki öll til…
Skoða fund →
Vinnumenning er allt umlykjandi fyrirbæri sem getur verið eins og vinalegt faðmlag þegar vel tekst til. Á vinnustað þar sem slík menning ríkir er starfsfólk metið að verðleikum og nær bæði að vera í flæði og blómstra í starfi. Á slíkum vinnustað ríkir traust og “jákvæð streita” hvetur starfsfólkið til dáða.
Hver verður með okkur?
Svalar: Ingibjörg Loftsdóttir og Líney Árnadóttir.
Þær brenna báðar fyrir vellíðan á vinnustöðum og hafa mikla þekkingu og reynslu á því sviði. Þær hafa unnið að þróun gagnlegra verkfæra til að stuðla að vellíðan í vinnu og eru með reynslu af stjórnun, mannauðsmálum, námskeiðshaldi og fyrirlestrum auk þess að vera báðar markþjálfar.