Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Hvernig markviss endurgjöf skilar árangri

09:00
Á Teams

Þeir stjórnendur sem ná mestum árangri með teymin sín eru með háar væntingar til fólks og líta á endurgjöf sem leið til að lyfta upp og styðja. Stjórnendur mikla hins vegar oft fyrir sér að láta starfsfólk bera ábyrgð á sínu og upplifa stundum að þeir séu óþarflega óvægnir ef þeir eru með kröfur eða setja skýr mörk. Það er hins vegar alveg hægt að gefa endurgjöf án þess að vera leiðinlegur eða detta í micromanagement (sem flestir vilja forðast).

Á Dokkufundinum fáum við kynnast nokkrum verkfærum sem við getum notað til að gefa markvissa og árangursríka endurgjöf.

Hver verður með okkur?
Ásdís Eir Símonardóttir, stjórnendaráðgjafi og ástríðukona um vinnustaðamenningu sem skapar árangur.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi