Vitræn hæfniVæntanlegur

Hvernig má efla skapandi og lausnamiðaða hugsun starfsfólks og efla þannig nýsköpun, árangur og vellíðan starfsfólks?

09:00
Á Teams

Fyrirtæki eins Disney, Apple, Netflix, Tesla, Airbnb og Amazon hafa öll lagt áherslu á sköpunargleðina og þau gera það til dæmis til þess að leysa vandamál á skapandi máta, uppfylla þarfir viðskiptavina betur, gera þau frábrugðin samkeppnisaðilum og til að ná meiri árangri.

Víða heyrum við að skapandi og lausnamiðuð hugsun er mikilvæg. Í skýrslu Alþjóða efnahagsráðs er talað um að þetta sé einn af mikilvægustu færniþáttunum á vinnumarkaðinum og sá sem mun vaxa hvað hraðast í mikilvægi á næstu árum.

Tilkoma gervigreindar hefur aukið hraða breytinga og líkt og forstjóri gervigreindar hjá Microsoft talar um þá er skapandi hugsun einn af þeim mannlegu þáttum sem við ættum að einbeita okkur að og efla.

Hver verður með okkur?
Birna Dröfn Birgisdóttir, sköpunargleðifræðingur og stofnandi Bulby (www.bulby.com), sem er tól sem eflir sköpunargleðina. Hún hefur rannsakað hvernig efla má sköpunargleði á meðal starfsmanna í doktorsnámi sínu við Háskólann í Reykjavík og hefur talað um það í TEDx erindi sínu og þjálfað hundruðir einstaklinga og fyrirtæki í sköpunargleði víða um heim.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi