Á Dokkufundinum verður fjallað um skattaleg álitaefni í tengslum við viðskipti yfir landamæri. Áhersla verður lögð á sölu á þjónustu og verður tvíþætt, annars vegar sala erlendra aðila á Íslandi og hins vegar sala íslenskra aðila úr landi.
Hver verður með okkur? Guðrún Björg Bragadóttir, verkefnastjóri hjá KPMG. Guðrún hefur starfað hjá KPMG frá árinu 2008 og var áður skattstjóri Vestfjarðarumdæmis í 6 ár, einnig starfaði Guðrún hjá dönskum skattyfirvöldum. Sérsvið Guðrúnar Bjargar er skattamál félaga og einstaklinga.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Árangursrík rekstrarstjórnun á tímum gervigreindar
– Hlutverk áætlanagerðar, fjárhagsupplýsinga og virkrar eftirfylgni. Hvernig geta stjórnendur nýtt fjárhagsupplýsingar, áætlanagerð og gervigreind til að bæta rekstrarárangur fyrirtækja? Góður rekstur byggist á skýrum markmiðum, vandaðri áætlanagerð…
Af hverju taka skynsamir stjórnendur stundum slæmar fjárhagsákvarðanir?
Stjórnendur þurfa ekki að vera fjármálasérfræðingar til að taka góðar ákvarðanir, en þeir þurfa að þekkja helstu kennitölur og skilja hvernig þeir meta og taka áhættu og ákvarðanir….
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…