Gervigreind fyrir vinnustaði, nýting hennar í daglegum störfum
09:00
Á Teams
Á Dokkufundinum fáum við að sjá hvernig gervigreind getur gagnast í daglegu starfi. Farið verður yfir fjórar mismunandi leiðir og sýnir dæmi sem allir geta nýtt strax eftir fyrirlesturinn. Einnig verður rætt um hvernig fyrirtæki geta innleitt lausnir fyrir starfsfólk, sjálfvirknivætt ferla og bætt yfirsýn og stjórnun með hjálp gervigreindar.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hvernig þú getur byrjað að vinna hraðar, skýrara og skapandi með gervigreind — strax.
Á þessum Dokkufundi fáum við að sjá á einfaldan og hagnýtan hátt hvernig hægt er að nýta gervigreind til að spara tíma, vinna betur og einfalda dagleg verkefni….
Starfsfólkið þitt notar gervigreind nú þegar, hvort sem vinnustaðurinn veit af því eða ekki. Fyrirtækin sjálf eru hins vegar allt of lengi að bregðast við. Á flestum vinnustöðum…
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um stafræna vegferð, lærdóm og fræðilegar tengingar, uppbyggingu teyma, stafrænar umbreytingar, stafræna verkefna- og vörustýringu og kúltúrhakk – og leitast við að svara…