Að taka stjórnina: Öryggisávinningur þess að taka af skarið
09:00
Á Teams
Að undanförnu höfum við verið með fjölmarga Dokkufundi um gervigreind frá margvíslegum sjónarhólum – en núna er komið að öryggismálunum í tengslum við gervigreindina. Heiðar Eldberg frá APRÓ mun fara yfir sína reynslu af því hvernig best er fyrir fyrirtæki og stofnanir að sitja við stjórnvölinn, í öruggri innleiðingu gervigreindar.
Hver verður með okkur? Heiðar Eldberg Eiríksson hjá APRÓ Hann hefur áratugareynslu úr ýmsum störfum innan tæknigeirans svo sem hjá CCP Games, Controlant og núna hjá APRÓ þar sem Heiðar er teymisleiðtogi. Hans sérhæfing er nútímavæðing- og flutningar kerfa og hagnýting skýjatækni.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hvernig þú getur byrjað að vinna hraðar, skýrara og skapandi með gervigreind — strax.
Á þessum Dokkufundi fáum við að sjá á einfaldan og hagnýtan hátt hvernig hægt er að nýta gervigreind til að spara tíma, vinna betur og einfalda dagleg verkefni….
Starfsfólkið þitt notar gervigreind nú þegar, hvort sem vinnustaðurinn veit af því eða ekki. Fyrirtækin sjálf eru hins vegar allt of lengi að bregðast við. Á flestum vinnustöðum…
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um stafræna vegferð, lærdóm og fræðilegar tengingar, uppbyggingu teyma, stafrænar umbreytingar, stafræna verkefna- og vörustýringu og kúltúrhakk – og leitast við að svara…