Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Örugg tjáning með áherslu á netheima – rafræna fyrirlestra og framkomu

12:00
Á Teams

Á Dokkufundinum skoðum við og lærum betri samskipti og framkomu i netheimum:

  1. Hefurðu áhuga á að læra hvernig hægt er að taka virkari þátt í umræðum á netfundum?
  2. Finnst þér þú tala of hratt þegar spennan tekur völdin?
  3. Hvernig er best að tjá sig á fjarfundum og hvernig er það frábrugðið venjulegum fundum?
  4. Hvernig getum við stuðlað að góðum samskptum í netheimum, en þar er sannarlega hægt að misstíga sig

Hver verður með okkur?
Sirrý Arnardóttir. Hún er stjórnendaþjálfari, fyrirlesari, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst. Fjölmiðlakona í 30 ár.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi