Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Virkjum gott fólk til góðra verka

09:00
Á Teams

ATH. að upptakan er einungis aðgengileg til 27. mars 2025.

Guðrún leiðir stefnumót stjórnenda og annarra í Dokkunni um hagnýta hugsun og öflugar aðferðir til að auka frumkvæði, ábyrgð og ánægju allra starfsmanna.  Hvernig náum við að virkja getu ólíkra kynslóða starfsmanna á gervigreindaröld?  Ljóst er að fólk mætir til leiks af ólíkum áhuga og helgun og uppsker misjafnan árangur.  Rætt verður um tímanlegar og tímalausar leiðir til að laða fram frammistöðu allra – öllum til góðs.

Hver verður með okkur?

Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Franklin Covey á íslandi.

Guðrún er okkur öllum af góðu kunn og einn okkar mesti reynslubolti á sviði stjórnunarþjálfunar og nýjunga á sviði fræðslu og þjálfunar almennt.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi