fbpx

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Breytingaskeiðið – já þú last rétt, breytingaskeiðið og áhrif þess á starfsferilinn og vinnustaði

Á vefnum

Á Dokkufundinum ætlar Halldóra að leitast við að svara eftirfarandi spurningum og af hverju þær eru mikilvægar. Hvernig er talað um breytingaskeiðið á þínum vinnustað - er talað um það? Hvað er breytingaskeiðið og hvernig hefur það áhrif inn á vinnustaðinn? Þurfa karlmenn að vita eitthvað um þetta skeið? Hvernig getur vinnustaðurinn orðið breytingaskeiðsvænn? 1 […]

Hvað ef vinnan væri góð fyrir geðheilsuna?

Á vefnum

Markmið Dokkufundarins er að vekja stjórnendur og starfsfólk til umhugsunar um mikilvægi þess að huga að geðheilbrigði á vinnustað. Farið verður yfir helstu áskoranir sem stjórnendur fyrirtækja og stofnana standa frammi fyrir þegar kemur að geðheilbrigði á vinnustað. Rætt verður um áhrif stjórnunar og vinnumenningar á geðheilsu starfsfólks, um skyldur og ábyrgð stjórnenda og þá […]

Verkefnastjórnun: Undirbúningur verkefna

Á vefnum

Verkefnastjórnun er ákveðið ferli sem hefst með góðum undirbúningi og skipulagningu. Hvað er það sem einkennir góð verkefni og af hverju ganga sum verkefni betur en önnur? Á Dokkufundinum verður farið yfir nokkra lykilþætti sem þarf að huga að í undirbúningi verkefna og geta skipt sköpun að vel heppnuðu verkefni. Hver verður með okkur? Hugrún […]

Hvernig eru heilbrigð samskipti á vinnustað?

Á vefnum

Samskipti og samskiptahæfileikar eru ekki eiginleikar sem fólk fæðist með, heldur lærðir. Því er samskiptahæfni jafn misjöfn og við erum mörg. Á Dokkufundinum verður fjallað um mismunandi tegundir af samskiptum. Einnig verður farið yfir hvernig hægt er að haga samskiptum á markvissan hátt til að nálgast sem flesta og stuðla þannig að heilbrigðum samskiptum á […]

Örugg tjáning með áherslu á netheima – rafræna fyrirlestra og framkomu

Á vefnum

Athugið óhefðbundinn fundartíma - fundurinn er kl 12.00 - 12.45. Á Dokkufundinum skoðum við og lærum betri samskipti og framkomu i netheimum: Hefurðu áhuga á að læra hvernig hægt er að taka virkari þátt í umræðum á netfundum? Finnst þér þú tala of hratt þegar spennan tekur völdin? Hvernig er best að tjá sig á […]

Að fyrirbyggja meðvirkni á vinnustaðnum

Á Dokkufundinum verður fjallað um hvað getur orsakað að meðvirkar aðstæður fá að þróast á vinnustaðnum og hvaða áhrif þær geta haft. Hvernig við verðum meðvirkninni að bráð án þess að taka eftir því og hvaða áhrif það hefur á menninguna á starfsandann á vinnustaðnum. Sömuleiðis verður farið yfir ólíkar leiðir sem við getum sjálf […]

Vellíðan í starfi og mjúki leiðtoginn

Á vefnum

Hvert stefnum við í leiðtogafræðunum í dag? Hvað geta stjórnendur gert til að tryggja vellíðan starfsfólksins og hlúð þannig að trausti og helgun í starfi sem sem er undirstaða alls árangurs og framleiðni? Hver verður með okkur? Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun Ingibjörg er sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hún starfaði áður sem stjórnandi hjá […]

Hvað kostar þetta í heilsu og gæðastundum?

Á vefnum

Er það virkilega að verða normið í dag að vera foreldri nokkurra barna, að vera í fullu námi með vinnu, eiga súper aktívan vinahóp sem klífur fjöll og er alltaf í stuði - og þarna höfum ekki nefnt líkamsræktina og ultamaraþonin? Svo erum við steinhissa á allri þessari kulnun, þreytu og streitu - þegar við […]

Forgangsröðun verkefna og stjórnun verkefnaskrár

Á vefnum

Í flestum skipulagseiningum eru óskir um verkefni fleiri en hægt er að ráða við með góðu móti og þá skiptir máli að velja réttu verkefnin. Í fyrirlestrinum verður farið yfir praktísk atriði varðandi forgangsröðun verkefna og stjórnun á safni verkefna (verkefnaskrá). Hver verður með okkur? Aðalbjörn Þórólfsson, ráðgjafi í verkefnastjórnun. Aðalbjörn er einnig formaður Verkefnastjórnunarfélags […]

Framlínustjórnun; þjónusta, sala og ráðgjöf

Á vefnum

Ef fyrirtækið þitt er í þjónustugeiranum, þá eru viðskiptavinir þínir ekki í samskiptum við þig sem stjórnandann eða eigandann, þeir eru í samskiptum við framlínustarfsfólkið þitt. Þess vegna er afar mikilvægt að framlínustarfsfólkið séu að þjónusta á þann hátt að viðskiptavinurinn upplyfi þá þjónustu sem fyrirtækið vill ná fram. Með því að leggja áherslu á […]

Spjall um þyngdarstjórnunarkerfi líkamans og sjúkdóminn offitu

Á vefnum

Á Dokkufundinum fárum við að vita eitt og annað um efnaskiptaheilsu. Það er fullkomlega eðlilegt að líkaminn okkar vilji safna forða. En ef of mikið er af orkuforða i fituvefnum þá vakna spurningarnar um hvort verið sé að ógna heilsunni okkar. Við fáum sífellt upplýsingar um ný snilldarráð til að léttast. Þau virka frábærlega í […]

Að fyrirbyggja meðvirkni á vinnustað

Á Dokkufundinum verður fjallað um hvað getur orsakað að meðvirkar aðstæður fái að þróast á vinnustaðnum, hvernig við verðum meðvirkninni að bráð án þess að gera okkur grein fyrir því og hvaða áhrif það getur haft á menninguna og andann á vinnustaðnum. Sömuleiðis verður farið yfir nokkrar ólíkar leiðir sem við getum sjálf haft að […]