Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • “Kem aftur eftir fimm” – Fjarvinna sem virkar.

    Á vefnum

    Vinnufyrirkomulag á mörgum vinnustöðum hefur breyst hratt á undan undanförnum árum og eru fjarvinna og sveigjanlegt vinnufyrirkomulag nú orðin fastur hluti af menningunni á mörgum vinnustöðum. Sumir dafna í þessu fyrirkomulagi – njóta sveigjanleikans á meðan aðrir eiga erfiðara með það, bæði starfsfólk og stjórnendur. Til þess að fjarvinna virki þarf að huga að mörgu […]

  • Frá hugmynd að lausn… að virði!

    Á vefnum

    Hvað er virði? Er það kóði sem virkar, notandi sem brosir, eða samtal sem skilar árangri? Á þessum Dokkufundi skoðum við hvernig verkefnastýring og vörustýring móta lausnir sem lifa þrátt fyrir ólíka sýn, menningu og kerfi. Við rýnum í keðjuna og hvernig við getum hætt að hökta og byrjað að afhenda virði. Þetta er hugvekja um samvinnu, […]

  • Gerðu þetta bara! Reynslusögur frá SVÓT greiningu og stefnumótunarvinnu með starfsfólki

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi fáum við að heyra reynslusögu af stefnumótunarvinnu hjá lögreglunni á Suðurlandi. Farið yfir aðdraganda, undirbúning, SVÓT greiningarviðtöl, vinnu við stefnumótunina sjálfa og innleiðinguna sem nú er yfirstandandi. Hver verður með okkur? Arndís Soffia Sigurðardóttir, lögreglustjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Hæfniþættir Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að […]

  • Áhættustjórnun – forsenda stöðugs reksturs

    Á vefnum

    Markmið með erindinu er að kynna grunninn að skipulagðri og samræmdri áhættustjórnun, sýna hvers vegna hún er lykilatriði fyrir rekstur og ákvarðanatöku, og fara yfir hvernig hægt er að innleiða og starfrækja áhættustjórnunarkerfi sem styður við markmið og öryggi starfsheilda. Meðal þess sem farið verður yfir er: Hvað er áhættustjórnun (frá hugtaki til aðgerða). Helstu […]

  • Gagnrýnin hugsun sem hæfni

    Á vefnum

    Gagnrýnin hugsun er einn þeirra hæfniþátta sem hafa orðið sífellt meira lykilatriði fyrir menntun og atvinnulíf, ekki síst vegna tilkomu sjálfvirknivæðingar og þróunar skapandi gervigreindar. Sú hæfni að geta beitt gagnrýninni hugsun verður sífellt verðmætari í framtíðinni þar sem tækniþróun mun halda áfram að breyta vinnumarkaðnum og margs konar leikni og færni færast yfir á svið […]

  • Gervigreind neyðir okkur til að endurhugsa verðmætasköpun og rekstur

    Á vefnum

    Gervigreind er ekki næsta skref í stafrænni þróun skipulagsheilda heldur felur í sér mun róttækari umbreytingu á framtíðar verðmætasköpun og rekstri. Á þessum Dokkufundi skoðum við hvernig alþjóðlegir stjórnendur eru að endurhugsa stefnu sinna fyrirtækja, aukna fjárfestingu þeirra í innleiðingu gervigreindar, helstu áskoranir og hvaða lærdóm íslenskir stjórnendur geta dregið.   Hver verður með okkur? […]

  • Katar Norðursins – er þetta ekki bara gott módel?

    Á vefnum

    Á þessum fundi ræðum við um fjölmenningarlegt samfélag á Íslandi, hvert hefur þróunin fært okkur undanfarin ár og hvert stefnum við – sem hagkerfi, samfélag eða einstaklingar?   Hver verður með okkur? Sabine Leskopf, borgarfulltrúi og formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur. Hún hefur unnið í málefnum innflytjenda á Íslandi í meira en 20 ár, þ.m.t. sem formaður […]

  • F*ck it og önnur fyrirbæri fyrir leiðtoga

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi ætlar reyndur stjórnandi að deila þeim fyrirbærum sem hafa hjálpað henni að halda bæði skýrleika og skapi – án þess að hætta að vera leiðtogi.   Hver verður með okkur? Valgerður Hrund Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa. Hún hefur starfað í leiðtogahlutverkum lengur en hún getur munað. Hún hefur séð trend koma og fara, […]

  • Lykillinn að varanlegum árangri

    Á vefnum

    Ef fyrirtæki ætlar sér að starfa á árangursríkan og skilvirkan hátt til lengri og skemmri tíma þá þarf það að leysa af hendi fjögur hlutverk. Hvenær sem eitthvert þessara fjögurra hlutverka er ekki innt af hendi eða vantar, skapast vandamál, sem eru fyrirsjáanleg, eftir því hvaða hlutverk er vanrækt. Hver verður með okkur? Sigvaldi Egill […]

  • Tilfinningagreind

    Á vefnum

    Nánari lýsing væntanleg.   Hver verður með okkur? Guðrún Snorradóttir.   Hæfniþættir Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar. Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF […]

  • Gögn

    Á vefnum

    Nánari lýsing væntanleg. Hver verður með okkur? Davíð Stefánsson hjá uiData Hvar verðum við Á vefnum – í Teams  

  • Stjórnun forsenda í verkefnum (fer fram á ensku)

    Á vefnum

    ATH. - þessi Dokkufundur er í samstarfi við Verkefnastjórnunarfélag Íslands og mun fara fram á ensku Þetta er sama gamla sagan: Þú er skipaður verkefnastjóri og er falið að vinna að metnaðarfullu, nýstárlegu, vel fjármögnuðu og stefnumótandi verkefni sem mun hafa djúpstæð áhrif á fyrirtæki þitt, viðskiptavini og hugsanlega feril þinn. Þú ert að fara […]