- This event has passed.
Stjórnendahlutverkið 2.0 – Nýr veruleiki stjórnenda og teyma

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig hlutverk stjórnenda er að breytast í takt við nýtt vinnuumhverfi og nýjar kynslóðir á vinnumarkaði.
Skoðað verður hvað ræður árangri þegar færri stjórnendur bera ábyrgð á stærri teymum og hvernig helgun, hæfni, vinnuálag og regluleg endurgjöf móta árangur.
Hver verður með okkur
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafi Gallup.
Hún er með BS í sálfræði og MS í mannauðsstjórnun og hefur unnið í mannauðsmálum frá árinu 2014, bæði á almenna vinnumarkaðnum og hjá hinu opinbera.
Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:
- Stjórnunarhæfni
- Vitræn hæfni
- Persónuleg hæfni
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki hjá þér tölvupóst með tengli á upptökuna getur þú afskráð þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.