Loading Events

« All Events

Handan opinna rýma – Að hanna fyrir starfsorku og menningu

22. apríl @ 09:00 - 09:45

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hönnun vinnurýma fyrir verkefnamiðaða vinnu (e. Activity-Based Working) en áhersla þeirrar hugmyndafræði liggur í því hvernig hönnun getur mætt kröfum nútímans um einbeitingu, samvinnu og vellíðan, ásamt því að skapa sveigjanleg rými sem standast tímans tönn.

Þessi hugmyndafræði leggur einnig ríka áherslu á að byggingar og innviðir geti auðveldlega aðlagast nýjum hlutverkum sem heldur niðri bæði kostnaði og umhverfisáhrifum.

Hver verður með okkur

Hildur Ísdal Þorgeirsdóttir, en hún er arkitekt og innanhússhönnuður með yfir tíu ára reynslu frá Stokkhólmi, þar sem hún lærði og starfaði hjá Arkitema, einni framsæknustu arkitektastofu Norðurlanda.

Þar sérhæfði hún sig í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi (Activity-Based Working) og hönnun lausna fyrir skrifstofur, skóla og opinberar byggingar.

Hildur er flutt heim til Íslands og hefur nýlega stofnað eigin stofu, Ísdal – Arkitektúr & innanhússhönnun.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

  • Stjórnunarhæfni
  • Vitræn hæfni

 

Hvar verðum við

Á vefnum – í Teams

Details

Venue

  • Á vefnum