Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Samskipti og sigrar í vinnunni (erindið fer fram á ensku)

    Á vefnum

    Nánari lýsing væntanleg - erindið fer fram á ensku. Hver verður með okkur Tim Baker, sem margir þekkja sem höfund bókarinnar "The End of the Performance Review: A new Approach to Appraising Employee Perforformance", og kannski má kalla hann höfund þess sem oft er kallað snerpusamtöl. Fundurinn er haldinn í samstarfi við VÁ ráðgjöf, www.varadgjof.is […]

  • Hjálparhellan: Fræðslumenning sem byggir á seiglu, samábyrgð og gróskuhugarfari

    Á vefnum

    BM Vallá var valið Menntafyrirtæki ársins 2026 á Menntadegi atvinnulífsins fyrir framúrskarandi starf í fræðslu- og menntamálum. Á þessum Dokkufundi verður farið yfir helstu áherslur og ávinning fræðslustarfsins hjá þeim. Sérstök áhersla verður á mælikvarða, velsældarhagkerfi, inngildingu og Hjálparhellu BM Vallár—samfélagssjóð sem styður áhrifarík verkefni sem skapa jákvæðar samfélagsbreytingar, og er jafnframt nýtt innan fyrirtækisins […]

  • Stjórnendahlutverkið 2.0 – Nýr veruleiki stjórnenda og teyma

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufndi verður fjallað um hvernig hlutverk stjórnenda er að breytast í takt við nýtt vinnuumhverfi og nýjar kynslóðir á vinnumarkaði. Skoðað verður hvað ræður árangri þegar færri stjórnendur bera ábyrgð á stærri teymum og hvernig helgun, hæfni, vinnuálag og regluleg endurgjöf móta árangur. Hver verður með okkur Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafi […]

  • Sáttamiðlun á vinnustöðum

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi verður farið yfir hvernig getum við nýtt sáttamiðlun á vinnustöðum til að draga úr ágreiningsmálum og deilum sem upp geta komið á vinnustöðum. Fjallað er um það hvers vegna er mikilvægt fyrir stjórnendur að vera meðvitaðir um áhrif ágeiningsmála og hvað er hægt að gera til að grípa sem fyrst í taumana […]

  • Gervigreind með viðvörunarljós – hver er við stýrið þegar tæknin tekur völdin?

    Á vefnum

    Gervigreind með viðvörunarljós – hver er við stýrið þegar tæknin tekur völdin? - Um hugsun, ósýnileg box og leiðtogahæfni í heimi þar sem allt þarf að gerast strax Þú opnar tölvuna á morgnana. Pósthólfið er fullt. Slack pingar. Teams blinkar. Áður en þú nærð að klára kaffið hefur gervigreindin þegar boðið þér þrjár lausnir, fimm […]

  • Veistu fyrir hvað þú stendur sem stjórnandi?

    Á vefnum

    Ath. þessi fundur verður ekki tekinn upp og því ekki aðgengilegur eftir á. Á þessum Dokkufundi verður velt upp hvaða áhrif framtíðarsýn, lífsreglur og heilindi leiðtoga hafa á stjórnunarstíl og menningu teyma. Í erindinu veitir Guðrún Lind innsýn í 7 Linsur Leiðtogans sem urðu til út frá reynslu hennar við að vinna náið með stjórnendum og […]