Loading Events

« All Events

Er brjálaður framgangur?

7. maí @ 09:00 - 09:45

Hefðbundið er að það sé „brjálað að gera“  fundirnir margir, verkefnalistinn endalaus og allir á hlaupum.
En skilar það raunverulegum árangri? Mætti mögulega bjóða okkur að það sé “brjálaður framgangur” í staðinn?

Á þessum Dokkufundi skoðum við hvað þarf til að færa vinnustaði frá stöðugri annríki yfir í markvissan framgang.
Við skoðum hugarfar og vana okkar í stjórnun og hvaða áhrif það hefur á allt stjórnkerfið í skipulagsheildinni.
Ef við tökum gömul hugsanamynstur með okkur inn í nútímann, fáum við sjaldan þann framgang sem við erum í raun að sækjast eftir.

Þegar annríki er ruglað saman við árangur, verða fundir staðgengill framfara, slökkvistarfsemi verður daglegt ástand og stefnan situr eftir á glærunum. Hvað myndum við vilja sjá í staðinn sem raunverulega hjálpar okkur að setja fókus á það sem skiptir máli?

Hver verður með okkur

Sigvaldi Egill Lárusson og Maríanna Magnúsdóttir, eigendur og ráðgjafar hjá Hugsýn.

Maríanna býr yfir víðtækri reynslu sem stjórnandi, stjórnunarráðgjafi, leiðtogamarkþjálfi, teymisþjálfari og lóðs. Hún hefur unnið með einstaklingum, framkvæmdastjórnum og skipulagsheildum að því að vinna markvissar og skynsamlegar, auka árangur og leiða af meiri meðvitund og kærleika.

Sigvaldi hefur víðtæka reynslu af fjármálastjórnun fyrirtækja og stofnana ásamt því að hafa á undanförnum árum starfað við ráðgjöf á sviði stefnumótunar, innleiðingar stefnu og breytingastjórnunar.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

  • Stjórnunarhæfni
  • Vitræn hæfni

Hvar verðum við

Á vefnum – í Teams

 

 

 

Details

Venue

  • Á vefnum