Veistu fyrir hvað þú stendur sem stjórnandi?

Ath. þessi fundur verður ekki tekinn upp og því ekki aðgengilegur eftir á.
Á þessum Dokkufundi verður velt upp hvaða áhrif framtíðarsýn, lífsreglur og heilindi leiðtoga hafa á stjórnunarstíl og menningu teyma.
Í erindinu veitir Guðrún Lind innsýn í 7 Linsur Leiðtogans sem urðu til út frá reynslu hennar við að vinna náið með stjórnendum og finna með þeim út úr því hvað virkar og hvað virkar ekki, til að ná árangri og þrífast sem stjórnandi.
Linsan sem við ætlum að skoða á þessum Dokkufundi snýr að mikilvægi þess að hafa skýrar stjórnunarreglur og sýn sem tengist því hver við erum, hvað skiptir okkur máli og hver við viljum vera.
Hins vegar erum við ekki alltaf meðvituð um hvaða áhrif þetta hefur – bæði á okkur sjálf og aðra.
Sumir leiðtogar virðast hafa eitthvað sem aðrir hafa síður – eins konar X-factor.
Þeir vita fyrir hvað þeir standa og hafa hugrekki til að láta það raungerast í verki. Þegar slíkur grunnur er ekki til staðar aukast líkur á hegðunarmynstrum sem draga úr virði og trausti í þess að skapa þá þætti.
Hver verður með okkur
Guðrún Lind Halldórsdóttir, leiðtogaþjálfi og sálfræðingur sem hefur unnið með hundruðum stjórnenda víða um heiminn.
Hún rekur eigið fyrirtæki, Thrive REimagined, með aðsetur í Sviss, og sérhæfir sig í því að hjálpa stjórnendum að skapa meira virði með því að umbreyta hugsun, hegðun og hæfni.
Hún starfaði um árabil sem stjórnandi í alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum og hefur víðtæka reynslu af því að leiða stefnumótandi verkefni á sviði mannauðsmála, öllu því sem snýr að stjórnun og vinnustaðarmenningu í tengslum við samruna og yfirtökur, og ráðgjöf við stjórnendur og teymi á umbreytingartímum.
Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:
- Stjórnunarhæfni
- Sjálfsforysta
Hvar verðum við
Á vefnum – í Teams