Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Er nauðsynlegt að hrósa starfsfólki? Og ef svo, af hverju?

09:00
Á Teams

Hefur þú fengið hrós á síðustu 7 dögum? Hefur þú hrósað samstarfsfólki á síðustu 7 dögum?

Rannsóknir benda til að þeir sem upplifa að þeir fái það hrós sem þeir þurfa í sínu starfi, sýni meiri helgun, séu ólíklegri til að leita sér að öðru starfi og tengist almennt vinnustaðnum mun betur.

Á Dokkufundinum fáum við sjá hversu mikils virði hrósið er 💛

Hver verður með okkur?

Auðunn Gunnar Eiríksson, vottaður styrkleika þjálfari hjá Gallup, BA í sálfræði.

Auðunn hefur sl. 20 ár starfað í mannauðsmálum, sem sérfræðingur, ráðgjafi og mannauðsstjóri og er í dag stjórnenda og vinnustaðarrágjafi hjá Gallup.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi