Guðrún leiðir stefnumót stjórnenda og annarra í Dokkunni um hagnýta hugsun og öflugar aðferðir til að auka frumkvæði, ábyrgð og ánægju allra starfsmanna. Hvernig náum við að virkja getu ólíkra kynslóða starfsmanna á gervigreindaröld? Ljóst er að fólk mætir til leiks af ólíkum áhuga og helgun og uppsker misjafnan árangur. Rætt verður um tímanlegar og tímalausar leiðir til að laða fram frammistöðu allra – öllum til góðs.
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Franklin Covey á íslandi.
Guðrún Högna er okkur öllum af góðu kunn og einn okkar mesti reynslubolti á sviði stjórnunarþjálfunar og nýjunga á sviði fræðslu og þjálfunar almennt
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.