fbpx
Loading Events

« All Events

Umhverfissálfræði, heildarmyndin á vinnustaðnum

28. febrúar @ 09:00 - 09:45

Við erum alltaf stödd í einhvers konar umhverfi og er dvöl í vinnuumhverfi stór hluti af daglegu lífi fjölmargra. En hefurðu gefið því gaum að vinnuumhverfið getur haft heilmikil áhrif á líðan þína, hugsun og hegðun? Hefurðu tekið eftir því hvernig sumir eiginleikar þess geta verið hvetjandi og uppbyggilegir en aðrir letjandi og lítt styðjandi?

Í fyrirlestrinum verður fjallað um ólíka eiginleika vinnuumhverfis og sálfræðileg áhrif þeirra á fólk rædd.

Hver verður með okkur?

Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, eigandi ENVALYS, fyrirlesari og kennari við Háskólann í Reykjavík

Hvar verðum við?

Á vefnum – í Teams

Details

Date:
28. febrúar
Time:
09:00 - 09:45
Event Category:

Venue

Á vefnum