fbpx
Loading Events

« All Events

Settu þér skemmtileg markmið!

20. febrúar @ 09:00 - 09:45

Að setja sér markmið er mikilvægt til að ná fram því sem við óskum okkur í lífinu. Hvort sem það tengist góðri heilsu, atvinnu, að koma verkefnum og hugmyndum í framkvæmd eða að láta drauma okkar verða að veruleika. Markmið eru ákveðinn vegvísir að draumum okkar og því sem þig langar að gera, upplifa, eiga eða verða.

Margir eru með hálfgert ofnæmi fyrir þessu orði, markmið. Það er eflaust vegna þess að fólk tengir markmið gjarnan við eitthvað sem er leiðinlegt en það er svo mikill misskilningur því markmið geta líka verið skemmtileg.

Fyrirlesturinn á Dokkufundinum hvetur þig til að setja þér skemmtileg markmið, tengjast þínum innri draumum og skapa það líf sem þig langar í og uppgötva kraftinn sem býr innra með þér. Tækifæri fyrir þig, til að staldra við og skoða hvað það er sem þú raunverulega vilt í lífinu, skapa þér sýn fyrir framtíðina og finna leiðir til að breyta draumum í veruleika með því að setja þér skýr markmið.

Hver verður með okkur?

Þóra Hrund, eigandi Munum.

Munum hefur síðustu 10 árgefið út dagbækur sem hannaðar eru með það að leiðarljósi að auðvelda markmiðasetningu, tímastjórnun og efla jákvæða og þakkláta hugsun. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um hvernig megi nýta ýmis tól til að skapa sér skýra framtíðarsýn, setja sér markmið og ásetning til að upplifa meiri lífsgleði, skapa það líf sem þig í langar í, í meira jafnvægi og í minni streitu.

Hvar verðum við?

Á vefnum – í Teams

Details

Date:
20. febrúar
Time:
09:00 - 09:45
Event Category:

Venue

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.