Þegar óvissan eykst verður leiðtogahlutverkið sýnilegra en nokkru sinni.
Breytingar reyna ekki aðeins á skipulag, ferla og ákvarðanir. Þær reyna á fólk. Þegar svörin eru ekki öll til staðar leitar starfsfólk eftir skýrleika, festu og trausti – og horfir ekki síst til næsta stjórnanda.
En hvernig leiðir þú þegar þú veist ekki sjálf/ur nákvæmlega hvað tekur við?
Hvernig skapar þú öryggi án þess að lofa vissu sem þú hefur ekki?
Og hvernig hjálpar þú fólki að færa sig úr vörn og óöryggi yfir í þátttöku og fram á við?
Á þessum Dokkufundi skoðum við leiðtogahlutverkið þegar breytingar og óvissa verða hluti af daglegu starfi. Við beinum sjónum að því sem fólk þarf mest frá stjórnendum þegar á reynir – og hvernig leiðtoginn getur með eigin framkomu, samskiptum og nærveru haft áhrif á hvernig fólk mætir breytingunum.
Því leiðtoginn þarf ekki að hafa öll svörin.
En hann þarf að vita hvernig hann ætlar að mæta óvissunni.
Hver verður með okkur?
Guðrún Snorradóttir stjórnendaþjálfi. Hún hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.
Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.