Leiðtogahlutverkið á tímum breytinga
Þegar óvissan eykst verður leiðtogahlutverkið sýnilegra en nokkru sinni. Breytingar reyna ekki aðeins á skipulag, ferla og ákvarðanir. Þær reyna á fólk. Þegar svörin eru ekki öll til…
Skoða fund →
Þegar vinnuumhverfi er breytt beinist athyglin oft að fermetrum, húsgögnum og tæknilausnum. Vinnuumhverfi er hins vegar mun meira en húsnæði og skrifborð.
Rannsóknir sýna að sveigjanlegt vinnuumhverfi getur aukið samvinnu og samskipti en líka haft áhrif á næði, endurheimt og líðan starfsfólks.
Jafnframt eru áhrifin ekki þau sömu fyrir alla — persónueinkenni, viðhorf og fleiri þættir geta leitt til þess að innan sama vinnuumhverfis er upplifun starfsfólks mjög mismunandi.
Á þessum Dokkufundi verður farið yfir niðurstöður nokkurra íslenskra langtímarannsókna og fjallað um þætti sem stjórnendur þurfa að hafa í huga til að skapa vinnuumhverfi sem hentar ólíkum verkefnum og ólíku fólki.
Hver verður með okkur?
Freyr Halldórsson, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Hann hefur m.a. kennt námskeið í vinnusálfræði, þjálfun og þróun starfsfólks, og stjórnun í meistara- og grunnnámi.
Rannsóknir hans eru á sviði mannauðsstjórnunar og vinnusálfræði, með áherslu á vinnuumhverfi, viðhorf starfsfólks og líðan í starfi.
Hann er með doktorspróf í mannauðsstjórnun og vinnumarkaðsfræði frá University of Minnesota og MA-gráðu í vinnu- og skipulagssálfræði frá New York University.
Freyr hefur jafnframt víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, meðal annars sem mannauðsstjóri Sjúkratrygginga Íslands, sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Reykjavíkurborg og sjálfstæður ráðgjafi.