Með aukinni tengingu við innsæi þitt muntu nálgast leiðtogahlutverkið á nýjan hátt. Þú sérð ný tækifæri í verkefnum og ekki síst í samstarfsfólki, möguleika þess til að vaxa og þroskast og til að ná þeim árangri sem hópurinn stefnir að. Þannig verður þú leiðtogi sem stækkar hópinn og eflir.
Hvernig getur þú verið umbreytingaraflið sem leiðtogahlutverkið ætlar þér – hvort heldur sem þú leiðir teymi, fyrirtæki eða viljir bara verða betri leiðtogi í eigin lífi?
Sjáðu hvernig þessi nálgun mun breyta þinni sýn á leiðtogahlutverkið.
Við fáum að vita meira um þetta á Dokkufundinum.
Hver verður með okkur?
Þórdís Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Manifesto, leiðtogaþjálfunar.