Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Áskoranir í atvinnuleit, öflun umsækjenda og ráðningum

09:00
Á Teams

Á Dokkufundinum verður velt upp nokkrum spuningum varðandi öflun umsækjenda og ráðningar og hvernig við getum nálgast verkefnið á nýjan hátt með með sjálfvirkri pörun vinnustaða og einstaklinga á dýpri og markvissari hátt en almennt gerist. Sagt verður frá hvernig möguleg lausn mun hjálpa til við að auka fjölbreytileika á vinnustöðum, minnka “bias”, stytta tímann sem hver ráðning tekur, efla ímynd vinnustaða, koma með nýja nálgun við mælingar á árangur og margt fleira.

Hverjar verða með okkur?
Helga Jóhanna Oddsdóttir og Herdís Pála Pálsdóttir, stofnendur Opus Futura. Báðar reynslumiklir mannauðsstjórar, framkvæmdastjórar og stjórnarkonur.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi