Hvernig hafa gildi verið að breytast og hvernig verða þau almennt til?
09:00
Á Teams
Mikið er talað um þær breytingar sem eru að eiga sér stað í samfélaginu og birtingarmynd þeirra speglast ekki síst inn í vinnumarkaðinn í formi hreyfingar á starfsfólki. Við hjá Dale Carnegie erum áhugasöm um hegðun og líðan fólks almennt og höfum velt því fyrir okkur hvernig gildi hafa breyst og hvaða áhrif og afleiðingar það hefur inn í fyrirtækin. Flestir kannast við “The great resignation” eða “Stóra uppsögnin” og stjórnendur leggja sig fram við að skilja hvað það er sem gerir fyrirtækið að eftirsóknarverðum vinnustað.
Á vinnustofunni veltum við upp nokkrum spurningum – eins og:
Hvernig hafa gildi verið að breytast og hvernig verða þau almennt til?
Hvernig geta fyrirtæki aðlagað gildi sín að nýjum gildum fólks án þess að það hafi áhrif á grundvallar forsendur starfseminnar?
Hvað ef að gildi starfsfólks og fyrirtækisins rekast á?
Hver eru algengustu gildi íslenskra fyrirtækja og stofnana og eru þau líkleg til að laða að þeim starfsfólk?
Hver verða með okkur? Unnur Magnúsdóttir og Jón Jósafat Björnsson eigendur Dale Carnegie.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Frammistöðustjórnun – fyrir aukinn árangur og betri vinnustaðarmenningu
Við viljum öll hafa afkastamikla starfsmenn, ná markmiðum og skapa góða vinnustaðamenningu. En hvað ef aðferðirnar sem við notum til að stjórna frammistöðu eru í raun að ýta…
Á þessum Dokkufundi… Hver verður með okkur? Vaka Ágústsdóttir, hjá VÁ ráðgjöf, www.varadgjof.is Hún er með meistaragráðu í vinnusálfræði (M.Sc.) frá Háskóla Íslands og yfir 15 ára reynslu…
Viðhorf okkar til starfsgetu þegar heilsan bregst Þegar heilsan bregst er fyrsta spurningin oft hvort einstaklingur eigi að vera í starfi eða fara í veikindaleyfi. Það getur vissulega…