Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Hver er munurinn á mannauðsmálum hjá hinu opinbera og á almennum markaði?

09:00
Á Teams

Á Dokkufundinum verður leitast við að svara etirfarandi spurningum:

  • Hvað einkennir mannauðsmál hjá ríkinu?
  • Hvað getur hið opinbera lært af almennum markaði og hvað geta þau lært af okkur?
  • Hver eru sóknarfæri í mannauðsmálum ríkisins?

Hver verður með okkur?
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem, mannauðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, þar sem hún leiðir teymi mannauðs og starfsumhverfis.
Þóra Margrét er í stjórn Mannauðs og er formaður stjórnar faghóps um mannauðsmál ríkisins.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi