Skýrslugjöf um kynbundinn launamun – hvar á að byrja?
Fyrirtæki og stofnanir með fleiri en 50 starfsmenn þurfa að uppfylla lagaskyldu um skýrslugjöf um kynbundinn launamun sem felur í sér skil á gögnum sem sýna fram á…
Skoða fund →
Segja má að sveigjanleiki á vinnustað vísi til stefnu og starfshátta, sem veita starfsfólki meira frelsi til að ákveða hvenær, hvar og hvernig þau vinna. Þetta snýst ekki eingöngu um fjarvinnu — heldur felur það einnig í sér sveigjanlegan vinnutíma og sjálfræði til að nálgast verkefnin á ólíkan máta.
Á Dokkufundinum fáum við innsýn í hvernig sveigjanleiki hefur verið innleiddur hjá Advania. Leitað verður svara við spurningum eins og hvað þýðir sveigjanleiki í daglegu starfi, hverjir eru helstu kostir hans og hverjar eru helstu áskoranir sem fylgja sveigjanleika.
Enn fremur er farið yfir hvernig Advania tekst á við þessar áskoranir til að styðja bæði framleiðni og vellíðan starfsfólks.
Hver verður með okkur?
Ingunn Guðmundsdóttir, mannauðssérfræðingur hjá Advania