- This event has passed.
Breytingaskeiðið – já þú last rétt, breytingaskeiðið og áhrif þess á starfsferilinn og vinnustaði
15. september 2023 @ 09:00 - 10:00
Á Dokkufundinum ætlar Halldóra að leitast við að svara eftirfarandi spurningum og af hverju þær eru mikilvægar.
- Hvernig er talað um breytingaskeiðið á þínum vinnustað – er talað um það?
- Hvað er breytingaskeiðið og hvernig hefur það áhrif inn á vinnustaðinn?
- Þurfa karlmenn að vita eitthvað um þetta skeið?
- Hvernig getur vinnustaðurinn orðið breytingaskeiðsvænn?
- 1 af hverjum 10 konum á breytingaskeiðsaldri dettur út af vinnumarkaðnum – hvað veldur?
Hver verður með okkur?
Halldóra Skúladóttir, markþjálfi sem sérhæfingu á sviði breytingaskeiðs kvenna
Halldóra sækir sérhæfingu sína m.a. til CPHT UK – Menopause & Hypnotherapy og frá Newson Health Research and Education – Confidence in the menopause.
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.