Tilfinningagreint teymi
– sameiginleg ábyrgð á trausti, vellíðan og árangri.
Af hverju þetta námskeið?
Þó að einstaklingar beri ábyrgð á eigin hegðun, mótast árangur vinnustaða fyrst og fremst af því hvernig fólk vinnur saman. Tilfinningagreind í teymum snýst um sameiginlega meðvitund, samskiptamynstur og óskrifaðar reglur sem hafa áhrif á traust, sálrænt öryggi og samvinnu.
Teymi í dag þurfa að geta tekist á við álag, ólíkar skoðanir, kynslóðabil og krefjandi samtöl – án þess að tengsl rofni eða samstarf veikist. Tilfinningagreint teymi er ekki háð formlegu
valdi eða titlum, heldur byggir á sameiginlegri ábyrgð allra þátttakenda á samskiptum og líðan hópsins.
Þetta námskeið byggir á hugmyndafræði The Emotionally Intelligent Team og leggur áherslu á að þróa teymi sem:
- tala opinskátt og af virðingu,
- takast á við ágreining á uppbyggilegan hátt,
- og sýna seiglu í sameiginlegum áskorunum.
Námskeiðið getur staðið eitt og sér, en hentar einnig vel sem framhald af Tilfinningagreind
stjórnandans, þar sem áherslan færist frá einstaklingnum yfir á teymið í heild.
Markmið námskeiðsins:
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:
- Aukna meðvitund um hvernig hegðun og viðbrögð hvers og eins hafa áhrif á teymið
- Sameiginlegt tungumál til að ræða líðan, ábyrgð og samstarf
- Færni til að taka þátt í erfiðum samtölum án þess að traust rofni
- Betri skilning á samskiptamynstrum og tilfinningalegu loftslagi teymisins
- Verkfæri til að styðja við sálrænt öryggi, vellíðan og seiglu hópsins
Hvenær?
18. mars 2026, kl. 9-12
Hvar?
Hannesarholt
Grundarstíg 10
101 Reykjavík
Fyrir hverja?
- Starfsfólk sem vinnur í teymum
- Verkefna- og fagteymi
- Þverfaglega hópa
- Lykilfólk í skipulagseiningum
- Stjórnendur sem eru þátttakendur í teymum, eru ekki eingöngu í stjórnendahlutverki
Hér má lesa skilamála námskeiða Dokkunnar.
Leiðbeinandi
Guðrún Snorradóttir
Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.
Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.
Sérsvið Guðrúnar er þjálfun á færni leiðtoga til framtíðar. Má þar nefna þrautseigju, tilfinningagreind, nýtingu styrkleika, leiðir til að skapa aukið traust og sálrænt öryggi, ásamt nýtingu markþjálfunar í margvíslegum samtölum við starfsmenn og viðskiptavini.
Verð
Almennt verð er kr. 34.900 – EN fyrir starfsfólk aðildarfyrirtækja Dokkunnar kr. 29.900
Ef keypt eru 2 sæti eða fleiri er veittur sérstakur 10% afsláttur og er verðið þá kr. 26.910 fyrir hvert sæti til starfsfólks aðildarfyrirtækja
og kr. 31.410 til annarra.
Snemmskráningarverð:
Af ofangreindum verðum reiknast aukalega 5% afsláttur fyrir þær skráningar sem berast fyrir 4. mars.
Samspil námskeiðanna um tilfinningagreind, þ.e. Tilfinningagreind stjórnandans og Tilfinningagreint teymi:
- Tilfinningagreind stjórnandans vinnur með innri færni og áhrif einstaklingsins í hlutverki.
- Tilfinningagreint teymi vinnur með sameiginlega ábyrgð, samskipti og menningu hópsins.
Saman mynda þau heildstæða þróunarleið, þar sem einstaklingar læra fyrst að leiða sjálfa sig – og síðan að leiða og taka þátt í heilbrigðu, traustu og árangursríku samstarfi.
Hér má lesa skilamála námskeiða Dokkunnar.