
Á Dokkufundinum fáum við að skyggnast inn í verkefnastjórnun og hagnýtingu hennar hjá Orku náttúrunnar – en verkefnaskráarstýring snýst um að skapa heildaryfirsýn yfir öll verkefni fyrirtækisins, tryggja forgangsröðun og tengingu við stefnu.
Við fáum að vita hvað verkefnaskráarstýring felur í sér og af hverju hún skiptir máli. Jafnframt fáum við að vita hvernig ON hefur þróað þessa nálgun á undanförnum árum – frá fyrstu skrefum í að safna upplýsingum og greina stöðu, til þess að innleiða markviss ferli og tæki sem styðja við stefnumiðaða verkefnastjórnun.
Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu hjá Orku náttúrunnar.
Kristín er með MS gráðu í iðnaðarverkfræði og um tíu ára reynslu innan fyrirtækisins. Kristín hefur sérhæft sig í verkefnaskráarstýringu, þróun ferla og umbótum á verklagi, hún brennur fyrir faglegri verkefnastjórnun, skýrum ferlum og því að styðja verkefnastjóra til árangurs.
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn áður en honum lýkur fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.