Erindið greinir frá viðamikilli rannsókn á kynferðislegri áreitni á íslenskum vinnumarkaði. Ítarlegur spurningalisti var lagður fyrir tilviljunarúrtak fólks á aldrinum 18 til 68 ára. Í úrtakinu eru bæði innflytjendur og fólk með íslenskan uppruna. Hingað til hafa flestar rannsóknir á kynferðislegri áreitni hérlendis notað hentugleikaúrtak og einblínt á einn ákveðinn vinnustað eða starfsvettvang og því er erfitt að draga af þeim almennar ályktanir um eðli og algengi kynferðislegrar áreitni. Í rannsókninni eru prófaðar tilgátur um tengsl milli stöðu á vinnumarkaði og reynslu af því að hafa orðið fyrir áreitni með beinni mælingu (þar sem spurt er „hefur þú orðið fyrir kynferðislegri áreitni“) og óbeinni mælingu (spurningar um reynslu af móðgandi og ógnandi kynferðislegri hegðun). Rannsóknin skoðar einnig hvort munur sé neikvæðum afleiðingum af áreitni eftir því hvort viðkomandi skilgreinir sjálfa(n) sig sem þolanda eða ekki. Niðurstöður sýna meðal annars að nokkuð stór hópur fólks á íslenskum vinnumarkaði verður fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sem hefur neikvæðar afleiðingar á líðan þeirra, afleiðingar sem eru óháðar því hvort fólk skilgreini sig sem þolanda.
Margrét Valdimarsdóttir, sérfræðingur hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Á vefnum
Þú færð sendan tengil á Dokkufundinn um miðja dag, daginn fyrir fundinn. Mikilvægt er að vera skráður tímanlega til að fá tengilinn sendan.